Gúrkan er góð.
Er gúrkutíð? Hér eru hugmyndir að fréttum.
– Istanbul er í logum. Erdogan hefur hótað að fjarlægja mótmælendur á morgun, en þeir eru nú að skiptast á að spila á píanó sem einhver kom með.
– Fasismi hefur verið innleiddur í Grikklandi. http://www.2ndcouncilhouse.co.uk/blog/2013/06/05/and-then-they-came-for-the-trans-people/
– Pussy Riot eru að drepast í fangelsi af því þær spiluðu pönk í kirkju.
– Bandaríkin eru í tilvistarkreppu af því þau eru eins og Austur-Þýskaland var.
En nei. Einhver ljóðrænn fyrrverandi pólitíkus fór í megrun. Ég meina, hann er ekki einusinni fyrsti framsóknarmaðurinn sem missir einhver kíló.